Nýr kjarasamningur var undirritaðir í nótt á milli Samtaka atvinnulífsins vegna Alcan á Íslandi (ISAL) og Félags iðn- og tæknigreina (FIT). Að samningnum standa auk FIT Verkalýðsfélagið Hlíf, Félag járniðnaðarmanna, Rafiðnaðarsamband Íslands vegna Félags íslenskra rafvirkja og Félags rafeindavirkja, Verslunarmannafélag Hafnarfjarðar og Félag matreiðslumanna.
Samningurinn verður kynntur á næstu dögum og á atkvæðagreiðslu um samninginn að vera lokið fyrir 10. febrúar.