Landsvirkjun tekur að sér að innheimta árgjald eða hluta árgjalda aðal- og aukafélaga viðkomandi stéttarfélaga af ógreiddum en kræfum vinnulaunum starfsmanna. Landsvirkjun annast skil gjaldanna til félaganna mánaðarlega.
Iðgjöld til lífeyrissjóðs greiðast vegna allra starfsmanna 16 ára og eldri í samræmi við staðfestar reglugerðir viðkomandi lífeyrissjóðs. Landsvirkjun annast skil iðgjaldanna mánaðarlega.
Landsvirkjun greiðir mótframlag frá 1. janúar 2005 8% iðgjald af heildarlaunum starfsmanns á móti 4% iðgjaldi starfsmanna.
Frá 1. janúar 2006 greiðir Landsvirkjun 9% iðgjald af heildarlaunum starfsmanns á móti 4% iðgjaldi starfsmanna.
Frá 1. janúar 2007 greiðir Landsvirkjun 11,5% iðgjald af heildarlaunum starfsmanns á móti 4% iðgjaldi starfsmanna.
Landsvirkjun greiðir 1% af heildarlaunum viðkomandi starfsmanns til endurmenntunarsjóðs byggingarmanna, Fræðslusjóðs málmiðnaðarins og Fræðslumiðstöðvar bílgreina. Endurmenntunargjaldi skal skilað til Samiðnar, sambands iðnfélaga.
Í þeim tilvikum sem starfsmenn leggja til viðbótarframlag í séreignasjóð greiðir Landsvirkjun framlag á móti með eftirfarandi hætti:
Leggi starfsmaður a.m.k. 2% viðbótarframlag í séreignarsjóð skal mótframlag Landsvirkjun vera 2%.