Milli hvers starfsmanns og Landsvirkjunar skal gerður skriflegur ráðningarsamningur.
4.2 Ráðningartími og uppsagnarfrestur
Ráðningartími skal að jafnaði hefjast með 3ja mánaða reynslutíma. Fyrstu 3 mánuði skal gagnkvæmur uppsagnarfrestur vera 1 vika, miðað við vikuskipti, næstu 9 mánuði skal uppsagnarfrestur vera 1 mánuður, en eftir 12 mánaða starf skal gagnkvæmur uppsagnarfrestur vera 88 dagar, hvort tveggja miðað við mánaðamót. Að öðru leyti fer um uppsagnarfrest skv. lögum.
Hjá starfsmönnum 60 ára og eldri með a.m.k. 10 ára starfsaldur hjá Landsvirkjun skal gagnkvæmur uppsagnarfrestur vera 6 mánuðir.
Uppsagnarákvæði skv. lið 4.2. gilda þó ekki ef starfsmaður sýnir vítaverða vanrækslu í starfi sínu, eða Landsvirkjun gerist brotleg gagnvart starfsmanni. Til vítaverðrar vanrækslu telst í þessu sambandi m.a., ef starfsmaður mætir ítrekað of seint til vinnu sinnar, ítrekaðar eða langvarandi fjarvistir frá vinnu án leyfis eða gildra ástæðna, enda hafi starfsmaðurinn fengið skriflega aðvörun, svo og ef starfsmaður óhlýðnast réttmætum fyrirmælum verkstjóra. Trúnaðarmanni skal tilkynnt um mál, sem upp kunna að koma af þessu tagi.
Brot á öryggisreglum, sem stofna lífi og limum starfsmanna, svo og tækjum fyrirtækisins í voða skal varða brottvikningu án undangenginna aðvarana, ef trúnaðarmaður og yfirmaður eru sammála um það.