Kosningu um miðlunartillögu Ríkissáttasemjara frá 19. mars sl. lauk í gær 11. apríl. Tillagan var samþykkt með 61,5% greiddra atkvæða. Einnig fór fram stjórnarfundur Rio Tinto Alcan á Íslandi hf. (ISAL) í gær þar sem miðlunartillagan var samþykkt einróma.