Samiðn vill taka eftirfarandi fram vegna heimsóknar fulltrúa Alþjóðasambands byggingamanna (IFBWW), ítölsku verkalýðshreyfingarinnar og Impregilo hingað til lands.
Heimsókn hinna erlendu fulltrúa er ekki í neinu sambandi við yfirstandandi deilur íslenskrar verkalýðshreyfingar við Impregilo. Heimsóknin var ákveðin í samráði við þau íslensku sambönd sem aðild eiga að IFBWW í byrjun nóvember í tengslum við gerð alþjóðlegs samnings á milli IFBWW og Impregilo (sjá samning). Í samningnum er gert ráð fyrir að samningsaðilarnir heimsæki nýja vinnustaði Imregilo og fylgi því eftir að samningnum sé framfylgt. Heimsóknin hingað til lands er liður í því eftirliti.
Varðandi þátttöku Samiðnar í þessari heimsókn þá hefur Samiðn falið Oddi Friðrikssyni aðaltrúnaðarmanni á Kárahnjúkasvæðinu að fylgja hinum erlendu fulltrúum um svæðið. Samiðn mun taka þátt í sameiginlegum fundi n.k. föstudag og mun formaður Samiðnar Finnbjörn A. Hermannsson verða fulltrúi sambandsins á fundinum. Hvað sameiginlegan blaðamannafund að loknum þeim fundi varðar þá hefur Samiðn tekið þá ákvörðun að taka ekki þátt í þeim fundi þar sem engar viðræður hafa átt sér stað á milli sambandsins og Impregilo til lausnar deilunni sem uppi er. Aðilar að virkjanasamningnum munu hins vegar eiga fund með fulltrúum IFBWW fyrir fundinn á föstudaginn þar sem þeir munu gera sambandinu grein fyrir yfirstandandi deilu.