3.1.1 Matartími á dagvinnutímabili telst ekki til vinnutíma. Matartími, 30 mínútur, skal vera á tímabilinu kl. 11:30-13:30.
3.1.4 Á venjulegum vinnudegi skulu vera tveir kaffitímar, 15 mínútur fyrir hádegi og 20 mínútur eftir hádegi, og teljast þeir til vinnutíma.
3.1.5 Kaffitíma má lengja, stytta eða fella niður með sama hætti og matartíma.
3.2.1 Sé unnin yfirvinna, skulu neysluhlé vera sem hér segir: kl. 19:00-20:00, kl. 24:00-00:20, kl. 03:30-04:00, kl. 06:45-07:00. Neysluhlé á frídögum skv. gr. 2.2 skal vera 1 klst. á tímanum frá 11:30-13:30, en að öðru leyti skulu neysluhlé í yfirvinnu á frídögum, á tímabilinu frá kl. 08:00-17:00, vera þau sömu og í dagvinnu og teljast til vinnutímans. Neysluhlé í yfirvinnu má taka með öðrum hætti með samkomulagi á vinnustað.
3.3.1 Sé unnið í neysluhléi þannig að það nái ekki fullum umsömdum tíma, skal neysluhlé að sama hluta greiðast með yfirvinnukaupi.
Þegar starfsmaður vinnur að beiðni yfirmanns í matartíma skal greiða honum laun fyrir hvern stundarfjórðung sem unnið er í (og í yfirvinnu kemur ein klst til viðbótar unnum tíma). Fyrir hvern unninnn kaffitíma greiðist tímalengd hans eins og hann er á hverjum vinnustað.
3.4.1 Starfsmenn, sem eru við störf á föstum vinnustað, skulu hafa aðgang að matstofu eftir því sem við verður komið. Matstofa telst sá staður í þessu tilviki, þar sem hægt er að bera fram heitan og kaldan mat, aðfluttan eða eldaðan á staðnum. Húsakynni og aðstaða skulu vera í samræmi við kröfur viðkomandi heilbrigðisyfirvalda. Starfsmenn greiði efnisverð matarins, en annar rekstrarkostnaður greiðist af viðkomandi stofnun.
3.4.4 Starfsmenn, sem ekki njóta mataraðstöðu samkv. gr. 3.1.1–3.1.4 skulu fá það bætt með ½ klst skv. tímakaupi í dagvinnu í launaflokki 105, 4 þrepi fyrir hvern vinnuskyldudag, enda séu þá uppfyllt eftirfarandi skilyrði:
– Vinnuskylda starfsmanns sé minnst sem svarar hálfri stöðu á viku
– Starfsmaður hafi vinnuskyldu á föstum vinnustað frá kl. 11:00-14:00 að frádregnu matarhléi.
– Matarhlé sé aðeins 1/2 klst.
Starfsmenn í hlutastarfi skulu fá greitt hlutfallslega miðað við starfshlutfall.