10.1. Félagsgjöld
10.1.1.
Atvinnurekandi tekur að sér að halda eftir af kaupi hvers starfsmanns félagsgjaldi því sem honum ber að greiða til félaganna, sem og öðrum gjöldum er félögin ákveða og afhenda til þeirra eftir nánara samkomulagi.
10.1.2.
Aðilar eru sammála um að verkalýðsfélögin fái aðstöðu til þess að taka félagsgjöld með hundraðshluta af kaupi t.d. með innheimtu samhliða lífeyrissjóðsgreiðslu og af sama gjaldstofni.
10.2. Iðgjöld í sjúkra- og orlofssjóði
10.2.1.
Greiða skal 1% á allt kaup starfsmanna til að standa straum af veikindum og sjúkrakostnaði og renni þær greiðslur í sjúkrasjóð viðkomandi félags.
10.2.2.
Greiða skal 0,25% á allt kaup starfsmanna í orlofsheimilasjóð viðkomandi félags.
10.3. Iðgjöld í lífeyrissjóð
10.3.1.
Iðgjöld til lífeyrissjóðs viðkomandi starfsgreinar eða starfshóps greiðist af öllu starfsfólki 16 ára til 70, sem tekur laun samkvæmt samningi þessum.
10.3.2.
Iðgjöld af öllum launum og að viðbættu orlofi er 10%. Starfsmaður greiðir 4% en atvinnurekandi 6%.
Frá 1. janúar 2005 hækkar framlag atvinnurekenda í samtryggingarlífeyrissjóð í 7,0% og á sama tíma fellur niður skylda til að greiða 1,0% fast í séreignasjóð óháð framlagi starfsmanns, sbr. gr. 10.3.3.2.
Frá 1. janúar 2007 hækkar iðgjald atvinnurekenda til samtryggingarlífeyrissjóðs í 8,0% samhliða 0,45% lækkun almenns tryggingagjalds.
10.3.3. Viðbótarframlög til lífeyrissparnaðar
10.3.3.1.
Starfsmaður leggur til viðbótarframlag
Leggi starfsmaður a.m.k. 2% viðbótarframlag í séreignarsjóð skal mótframlag vinnuveitanda vera 2%.
10.3.3.2. Ekki viðbótarframlag af hálfu starfsmanns
Leggi starfsmaður ekki viðbótarframlag í séreignarsjóð greiðir vinnuveitandi 1% í séreignarsjóð hans.
Framlag þetta greiðist til séreignardeildar þess lífeyrissjóðs sem viðkomandi starfsmaður á aðild að, nema starfsmaður ákveði annað.
Viðbótarframlag þetta í séreignarsjóð fellur niður 1. janúar 2005 samhliða hækkun framlags atvinnurekenda í samtryggingarlífeyrissjóð í 7,0%, sbr. gr. 10.3.2.
10.3.3.3.
Framlag á grundvelli laga nr. 113/1990 um tryggingagjald telst ekki hluti greiðslna skv. gr. 10.3.3.
10.4. Skilagreinar
10.4.1.
Til að greiða fyrir innheimtu gjalda láta innheimtuaðilar (lífeyrissjóðir, sveinafélög) í té sérstök eyðublöð (skilagrein), sem launagreiðendur útfylla og skila til innheimtuaðila, ásamt greiðslu.
10.4.2.
Í stað skilagreina samkvæmt 10.4.1. er atvinnurekendum heimilt að nota tölvuunnar skilagreinar, enda uppfylli þær þau skilyrði, sem krafist er varðandi eintakafjölda, fullnægjandi upplýsingar og uppsetningu.
10.5. Starfsmenntagjöld
10.5.1. Símenntagjald í byggingariðnaði
Í samræmi við samkomulag frá 28. nóvember 1996, með síðari breytingum, ber fyrirtækjum og meisturum í byggingariðnaði að greiða símenntagjald til fræðslusjóðs byggingariðnaðarins, kr. 654 á mánuði, vegna allra byggingamanna. Menntafélag byggingariðnaðarins ehf. varðveitir sjóðinn en greiðslur í hann teljast til lágmarkskjara starfsmanns skv. lögum. Á sama hátt skulu félagsmenn í aðildarfélögum Samiðnar, sem starfa í byggingariðnaði, greiða kr. 260 á mánuði til fræðslusjóðsins.
Ofangreindar fjárhæðir gilda frá 1. október 2004 og haldast óbreyttar til ársloka 2007.
Samkomulag aðila frá 28. nóvember 1996 er uppsegjanlegt með sex mánaða fyrirvara. Verði því sagt upp fellur ofangreint ákvæði brott úr kjarasamningi frá sama tíma.
10.5.2. Endurmenntunargjald í málmiðnaði
Í samræmi við samkomulag aðila frá 31. maí 1995, með síðari breytingum, ber öllum fyrirtækjum og stofnunum að greiða endurmenntunargjald til fræðslusjóðs málmiðnaðarins, kr. 1.050 á mánuði, vegna allra starfsmanna sem vinna við blikk- og málmiðnað og netagerð svo og iðnlærðra verkstjóra. Fræðslumiðstöð málmiðnaðarins ehf. varðveitir sjóðinn en greiðslur í hann teljast til lágmarkskjara starfsmanns skv. lögum. Á sama hátt skulu þau félög innan Samiðnar, sem hafa starfandi félagsmenn í blikk- og málmiðnaði og netagerð, greiða kr. 250 á mánuði vegna hvers félagsmanns.
Ofangreindar fjárhæðir gilda frá 1. október 2004 og haldast óbreyttar til ársloka 2007.
Samkomulag aðila frá 31. maí 1995 er uppsegjanlegt með sex mánaða fyrirvara. Verði því sagt upp fellur ofangreint ákvæði brott úr kjarasamningi frá sama tíma.
10.5.3. Fagmenntagjald bílgreina
Skv. samkomulagi um fræðslu og starfsmenntun í bílgreinum frá 7. júlí 1995 ber öllum fyrirtækjum og stofnunum, sem hafa félagsmenn innan FIT og aðildarfélaga Samiðnar er starfa í bílgreinum, að greiða fagmenntagjald til Fræðsluráðs bílgreina. Starfsmenn greiða á sama hátt í fagmenntasjóð.
Samkomulagið er uppsegjanlegt með sex mánaða fyrirvara. Verði því sagt upp fellur ofangreint ákvæði brott úr kjarasamningi frá sama tíma.
10.6. Skil á iðgjöldum
10.6.1.
Félags-, sjúkra- og orlofsheimilasjóðsgjaldi skal skila mánaðarlega til viðkomandi aðildarfélags Samiðnar. Aðildarfélagi er heimilt að semja við lífeyrissjóði um innheimtu þessara gjalda. Gjalddagi iðgjalda hvers mánaðar er 10. næsta mánaðar.
10.6.2.
Atvinnurekanda ber að halda iðgjöldum starfsmanns eftir af launum hans og standa viðkomandi sjóðum skil á þeim mánaðarlega ásamt eigin iðgjaldahluta, nema sérstaklega sé um annað samið og skal þeim skilað á nafn viðkomandi starfsmanns.
10.6.3.
Um skil á iðgjöldum til lífeyrissjóða vísast til samnings ASÍ og VSÍ um lífeyrismál frá 12. desember 1995, samnings ASÍ og VMS um lífeyrissjóði frá 19. maí 1969, ásamt síðari breytingum og reglugerða viðkomandi lífeyrissjóða.
10.6.4.
Um skil á starfsmenntagjöldum vísast til viðkomandi laga og samninga.