10.1.1. Vinnuveitendur skuldbinda sig til að halda mánaðarlega eftir félagsgjöldum jafnt félaga sem aukafélaga Félags hársnyrtisveina og skila þeim samhliða orlofsheimila- og sjúkrasjóðsiðgjöldum til félagsins og á sömu skilagrein.
10.1.2. Aðilar eru sammála um, að Félag hársnyrtisveina v/sveina fái aðstöðu til þess að taka félagsgjöld sem % af kaupi t.d. með innheimtu samhliða lífeyrissjóðsgreiðslu og af sama gjaldstofni.
10.2. Iðgjöld í sjúkra- og orlofssjóði
10.2.1. Greiða skal 1% á allt kaup starfsmanna til að standa straum af veikindum og sjúkrakostnaði og renni þær greiðslur í sjúkrasjóð FHS.
10.2.2. Greiða skal 0,25% á allt kaup starfsmanna í orlofsheimilasjóð FHS.
10.3.2. Iðgjöld af öllum launum og að viðbættu orlofi er 10%. Starfsmaður greiðir 4% en atvinnurekandi 6%.
Frá 1. janúar 2005 hækkar framlag atvinnurekenda í samtryggingarlífeyrissjóð í 7,0% og á sama tíma fellur niður skylda til að greiða 1,0% fast í séreignasjóð óháð framlagi starfsmanns, sbr. gr. 10.3.3.2.
Frá 1. janúar 2007 hækkar iðgjald atvinnurekenda til samtryggingarlífeyrissjóðs í 8,0% samhliða 0,45% lækkun almenns tryggingagjalds.
10.3.3. Viðbótarframlög til lífeyrissparnaðar
10.3.3.1. Starfsmaður leggur til viðbótarframlag
Leggi starfsmaður a.m.k. 2% viðbótarframlag í séreignarsjóð skal mótframlag vinnuveitanda vera 2%.
10.3.3.2. Ekki viðbótarframlag af hálfu starfsmanns
Leggi starfsmaður ekki viðbótarframlag í séreignarsjóð greiðir vinnuveitandi 1% í séreignarsjóð hans.
Framlag þetta greiðist til séreignardeildar þess lífeyrissjóðs sem viðkomandi starfsmaður á aðild að, nema starfsmaður ákveði annað.
Viðbótarframlag þetta í séreignarsjóð fellur niður 1. janúar 2005 samhliða hækkun framlags atvinnurekenda í samtryggingarlífeyrissjóð í 7,0%, sbr. gr. 10.3.2.
10.3.3.3. Framlag á grundvelli laga nr. 113/1990 um tryggingagjald telst ekki hluti greiðslna skv. gr. 10.3.3.
10.4.1. Til að greiða fyrir innheimtu gjalda láta innheimtuaðilar (lífeyrissjóðir, sveinafélög) í té sérstök eyðublöð (skilagrein), sem launagreiðendur útfylla og skila til innheimtuaðila, ásamt greiðslu.
10.4.2. Í stað skilagreina samkvæmt 10.4.1. er atvinnurekendum heimilt að nota tölvuunnar skilagreinar, enda uppfylli þær þau skilyrði, sem krafist er varðandi eintakafjölda, fullnægjandi upplýsingar og uppsetningu.