Komi til þess að nefnd Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins, sem starfar samkvæmt 25. kafla samnings Samtaka atvinnulífsins við Eflingu, Verkamannafélagið Hlíf og Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis (Flóabandalagið), dags. 7. mars árið 2004, nái samkomulagi um almenna hækkun launataxta, skal sú hækkun einnig ná til þessa samnings. Verði launalið þess samnings sagt upp skal launaliður þessa samnings einnig vera uppsegjanlegur miðað við sömu tímamörk.
Samningur þessi gildir til 31. desember 2008 en fellur þá úr gildi án sérstakrar uppsagnar.
Reykjavík, 27. apríl 2005
með venjulegum fyrirvara
F.h. Landsvirkjunar F.h. Samiðnar, sambands iðnfélaga
Stefán M. Halldórsson, sign. Vignir Eyþórsson, sign.
Elín Pálsdóttir, sign, Jóhann H. Þorgeirsson, sign.
Einar Mathiesen, sign Þorbjörn Guðmundsson, sign.