Nýr kjarasamningur við Samtök atvinnulífsins

Viðræðunefnd Samiðnar undirritaði 5.maí s.l. nýjan kjarasamning við Samtök atvinnulífsins til þriggja ára.  Samningurinn felur í sér almennar launahækkanir upp á rúmlega 11% á samningstímanum og hækkun á launatöxtum um kr. 34.000 auk hækkunar á orlofs- og desemberuppbót og eingreiðslu kr. 50.000 sem greiðist út við undirskrift. 

New Collective Agreement ENGLISH VERSION click here

Almennar launahækkanir

1.júní 2011 – 4,25%
1.febrúar 2012 – 3,5%
1.febrúar 2013 – 3,25%

Aðrir kjaratengdir liðir taka sömu breytingum hlutfallslega á sömu dagsetningum, nema um annað hafi samist.

Eingreiðsla kr. 50.000

Eingreiðsla í júní kr. 50.000 fyrir starfsmann í fullu starfi í mánuðunum mars-maí.
Starfsmenn sem létu af störfum í apríl eða eru í hlutastarfi fá hlutfallslega greiðslu miðað við starfstíma í mars og apríl.
Starfsmenn sem hófu störf í apríl og verða í starfi til 5. maí fá hlutfallslega greiðslu miðað við starfstíma í apríl og maí.
Greiða skal orlof og önnur launatengd gjöld af eingreiðslunni.

Kauptaxtar

Mánaðarlaun kauptaxta hækka um kr. 12.000 árið 2011, kr. 11.000 árið 2012 og kr. 11.000 árið 2013.

Launatafla 1 – Gildir frá 1.júní 2011
Iðnaðarmenn með sveinspróf eða sambærilega menntun
 

Mánaðarl.

Dagvinna

Yfirvinna

Stórhátíðarl.

Byrjunarlaun

247.555

1428

2571

3404

Eftir 1 ár í starfsgr.

254.366

1468

2642

3498

Eftir 3 ár í starfsgr.

259.704

1498

2697

3571

Eftir 5 ár í starfsgr.

265.202

1530

2754

3647

Eftir 7 ár í starfsgr.

270.771

1562

2812

3723

Iðnaðarmenn með a.m.k. 5 ára sveinspróf og meistararéttindi eða með tvöfalt sveinspróf sem bæði nýtast í starfinu
 

Mánaðarl.

Dagvinna

Yfirvinna

Stórhátíðarl.

Laun

283.000

1633

2939

3891

Iðnaðarmenn sem ekki falla undir          launatöflu 1
 

Mánaðarl.

Dagvinna

Yfirvinna

Stórhátíðarl.

Byrjunarlaun

224.000

1292

2326

3080

Eftir 1 ár

230.129

1328

2390

3164

Sérhæfðir aðstoðarmenn í iðnaðarstörfum með mikla faglega reynslu í iðngreininni
 

Mánaðarl.

Dagvinna

Yfirvinna

Stórhátíðarl.

Byrjunarlaun

183.618

1059

1907

2525

Eftir 1 ár í starfsgr.

184.754

1066

1919

2540

Eftir 3 ár í starfsgr.

187.027

1079

1942

2572

Eftir 5 ár í starfsgr.

189.299

1092

1966

2603

 

Starfsþjálfunarnemar

 

Mánaðarl.

Dagvinna

Yfirvinna

Stórhátíðarl.

Eftir 12 vikur

163.532

943 

1698 

2249 

Næstu 12 vikur

174.872

1009 

1816 

2404

Eftir 24 vikur

186.215

1074

1934 

2560


Desemberuppbót

Desemberuppbót fyrir hvert almanaksár miðað við fullt starf er:

2011: 
Á árinu 2011 kr. 48.800. 
Á árinu 2011 greiðist sérstakt álag á desemberuppbót, kr. 15.000, nema að ASÍ hafi ákveðið að samningarnir gildi til loka janúar 2012.

2012: 
Á árinu 2012 kr. 50.500.

2013: 
Á árinu 2013 kr. 52.100.

Orlofsuppbót

Orlofsuppbót fyrir hvert orlofsár (1.maí til 30. apríl) miðað við fullt starf er:

2011: 
Á orlofsárinu sem hefst 1. maí 2011 verði orlofsuppbót kr. 26.900. 
Á árinu 2011 greiðist sérstakt álag á orlofsuppbót, kr. 10.000, nema að ASÍ hafi ákveðið að samningarnir gildi til loka janúar 2012.

Álagið skal greiðast út samhliða greiðslu orlofsuppbótar samkvæmt kjarasamningi.

2012: 

2012: 
Á orlofsárinu sem hefst 1. maí 2012 verði orlofsuppbót kr. 27.800.

2013: 
Á orlofsárinu sem hefst 1. maí 2013 verði orlofsuppbót kr. 28.700.

Endurskoðunarákvæði (Rauð strik)

Í samningnum eru endurskoðunarákvæði í júní 2011, janúar 2012 og janúar 2013 þar sem forsendur samningsins eru metnar.

Gerviverktaka

Það er brot á kjarasamningi að gera verktakasamninga í stað ráðningasamninga við starfsmenn nema í þeim tilfellum að um sannanlega verktöku sé að ræða.

Lífeyrismál

Yfirlýsing samningsaðila um að lífeyrissjóðsiðgjöld munu hækka úr 12% í 15,5% á árunum 2014 til 2020.  Einnig fylgir í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar að unnið verði að jöfnun lífeyrisréttinda á milli almenna og opinbera markaðarins sem gæti falist í inngreiðslu ríkisins til jöfnunar á milli kerfa á næstu tíu til fimmtán árum.

Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar

Að auki fylgir í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar fyrirheit um átak gegn svartri atvinnustarfsemi, hæfnisskilyrði forsvarsmanna fyrirtækja (kennitöluflakk), bæting á réttarstöðu starfsfólks við gjaldþrot og sölu þeirra til nýrra eigenda en við það haldi starfsmenn áunnum réttindum s.s. orlofi og veikindarétti.  Samkomulag er um að taka lögin um opinber innkaup til endurskoðunar þar sem við mat á tilboðsgjöfum skal metið hvort starfsmenn séu í föstu ráðningarsambandi eða gerviverktakar.  Kveðið er á um í yfirlýsingunni að auka fjárfestingar í landinu um 150 milljarða á ári.  Þær framkvæmdir á vegum hins opinbera sem taldar eru upp í yfirlýsingunni eru upp á 13 milljarða til ársloka 2012.  Í yfirlýsingunni er kveðið á um menntamál og vinnumarkaðsúrræði þar sem sett eru fram markmið um lækkun hlutfalls þeirra sem ekki hafa lokið framhaldsskólamenntun úr 30% í 10% árið 2020.  Framhaldsskólunum verður í því sambandi gert kleift að taka inn haustið 2011 þá umsækjendur sem eru yngri en 25 ára og uppfylla skilyrði.  Gert er ráð fyrir að átakið kosti 500 milljónir á ársgrundvelli.

Sjá samninginn               

Sjá yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar               

Sameiginleg mál ASÍ – SA