4. KAFLI – Um orlof
4.1. Orlofslaun, orlofsfé, taka orlofs
4.1.1. Um orlof skal fara að lögum nr. 30/1987. Þar er gert ráð fyrir því að orlofi af öllum tekjum megi breyta í orlofstíma. Þá er miðað við að orlof skuli greiða af öllum tekjum og hlunnindum að kostnaðarliðum undanskildum.
4.1.2. Lágmarksorlof skal vera 24 dagar. Orlofslaun skulu vera 10,17% af öllu kaupi að kostnaðarliðum undanskildum.
4.1.3. Laugardagar, sunnudagar og helgidagar teljast ekki orlofsdagar.
4.1.4. Ljúki ráðningarsamningi starfsmanns og atvinnurekanda skal hann, atvinnurekandinn, greiða starfsmanninum öll áunnin orlofslaun hans.
4.1.5. Stéttarfélagi og atvinnurekanda er heimilt að gera með sér samkomulag um reglulegar greiðslur inn á sérstakan bankareikning á nafni starfsmanns.
4.2. Veikindi í orlofi
Veikist starfsmaður í orlofi innanlands það alvarlega að hann geti ekki notið orlofsins skal hann á fyrsta degi tilkynna það atvinnurekanda t.d. með símskeyti. Fram skal koma hjá hvaða lækni hann hyggst fá læknisvottorð.
Sama gildir ef starfsmaður veikist í landi innan EES svæðisins, Sviss, Bandaríkjunum eða Kanada það alvarlega að það leiði til sjúkrahúsvistar.
Fullnægi starfsmaðurinn tilkynningarskyldunni og standi veikindin lengur en í 3 sólarhringa innanlands eða 6 sólarhringa innan EES svæðisins Sviss, Bandaríkjunum eða Kanada, á hann rétt á uppbótarorlofi jafnlangan tíma og veikindin sannanlega vöruðu. Undir framangreindum kringumstæðum skal starfsmaður ávallt færa sönnur á veikindi sín með læknisvottorði.
Fyrirtæki á rétt á að láta lækni vitja starfsmanns er veikst hefur í orlofi. Uppbótarorlof skal veitt á tímabilinu 2. maí til 15. september eftir því sem kostur er, nema sérstaklega standi á.
4.3. Orlofsauki
4.3.1. Starfsmenn með sveinspróf eða sambærilega menntun
4.3.1.1. Starfsmaður sem unnið hefur í 5 ár í sömu starfsgrein á rétt á orlofi í 25 virka daga og orlofslaunum sem nema 10,64%.
Starfsmaður sem unnið hefur í 10 ár í sömu starfsgrein á rétt á orlofi í 27 virka daga og orlofslaunum sem nema 11,59%.
Starfsmaður sem unnið hefur í 5 ár í sama fyrirtæki á rétt á orlofi í 28 virka daga og orlofslaunum sem nema 12,07%.
Starfsmaður sem unnið hefur í 10 ár í sama fyrirtæki á rétt á orlofi í 30 virka daga og orlofslaunum sem nema 13,04%.
Starfsmaður sem öðlast hefur aukinn orlofsrétt vegna starfs hjá sama vinnuveitanda öðlast hann að nýju hjá nýjum vinnuveitanda eftir þriggja ára starf, enda hafi rétturinn verið sannreyndur.
Orlofsréttur reiknast frá upphafi næsta orlofsárs eftir að ofangreindum starfstíma er náð.
4.3.1.2. Námstími iðnnema í fyrirtæki telst til vinnu í starfsgrein eða til vinnu innan sama fyrirtækis.
4.3.2. Byggingamenn og skrúðgarðyrkumenn skv. skilgreiningu launaflokks 1
4.3.2.1. Þeir sem starfað hafa lengur en 5 ár í iðn sinni skulu fá fjóra daga til viðbótar, í heild 28 daga, og hafa orlofsprósentu sem er 12,07%.
Starfsmaður sem unnið hefur samfellt 5 ár í sama fyrirtæki á rétt á 29 virkum dögum og 12,55% orlofslaunum.
Starfsmaður sem unnið hefur samfellt 10 ár í sama fyrirtæki á rétt á 30 virkum dögum og 13,04% orlofslaunum.
4.3.2.2. Starfsmaður sem öðlast hefur aukinn orlofsrétt vegna starfs hjá sama atvinnurekanda fær hann að nýju hjá nýjum vinnuveitanda eftir þriggja ára starf, enda hafi rétturinn verið sannreyndur.
4.3.2.3. Námstími iðnnema í fyrirtæki telst til vinnu í starfsgrein eða til vinnu innan sama fyrirtækis.
4.3.3. Starfsmenn án sveinsprófs
Starfsmaður sem unnið hefur 5 ár í sama fyrirtæki eða 10 ár í sömu starfsgrein á rétt á orlofi í 25 daga og orlofslaunum sem nema 10,64%.
Starfsmaður sem unnið hefur 10 ár hjá sama fyrirtæki á rétt á orlofi í 30 daga og orlofslaunum sem nema 13,04%.
Starfsmaður sem hefur fengið aukinn orlofsrétt vegna starfa í sama fyrirtæki öðlast hann að nýju eftir 3 ár hjá nýjum atvinnurekanda, enda hafi rétturinn verið sannreyndur.
Orlofsréttur reiknast frá upphafi næsta orlofsárs eftir að ofangreindum starfstíma er náð.
4.3.4. Orlofstaka
Veita ber a.m.k. 20 virka daga á tímabilinu 2. maí til 15. september. Orlof umfram það má veita utan þessa tímabils og ákvarðast með minnst eins mánaðar fyrirvara.
Þeir sem samkvæmt ósk atvinnurekanda fá ekki 20 orlofsdaga á sumarorlofstímabili eiga rétt á 25% álagi á það sem vantar á 20 daga.
4.4. Dæmi um útreikning orlofslauna
Eftirtaldir þættir verða að vera kunnir:
A. Dagvinnutekjur án verkfæra og fatagjalds
B. Yfirvinnutekjur án verkfæra og fatagjalds
C. Bónustekjur án verkfæra og fatagjalds
D. Aðrar tekjur án verkfæra og fatagjalds
E. Orlofsprósenta
F. Dagvinnukaup
Út frá þessum upplýsingum um tekjur er reiknað út hvað viðkomandi hefur unnið sér inn marga dagvinnutíma í orlofslaun:
((A + B + C + D) * E/100) /F = Orlofstímar.
Þegar kemur að greiðslu orlofsins er upphæð orlofslaunanna fundin með því að margfalda saman orlofstímana, sem starfsmaðurinn hefur unnið sér inn, með dagvinnukaupinu sem gildir þegar viðkomandi fer í orlof sitt.