Desemberuppbótin á almennum markaði, að meðtöldu orlofi, er kr. 98.000 og skal greiðast í síðasta lagi 15. desember miðað við starfshlutfall og starfstíma.
Starfsmenn sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eða eru í starfi 1.desember eiga rétt á desemberuppbót. Starfsmenn í ákvæðisvinnu fá greidda desemberuppbót líkt og aðrir.
Sá tími sem starfsmaður er í fæðingarorlofi telst sem starfstími við útreikning desemberuppbótar.
Iðnnemar í fullu starfi hjá fyrirtæki á námstíma fá fulla desemberuppbót.
Fullt starf telst vera 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof.
> Ríkissjóður kr. 98.000,-
> Reykjavíkurborg kr. 106.100,-
> Faxaflóahafnir kr. 114.000,-
> Strætó kr. 106.100,-
> Orkuveitan kr. 114.000,-
> Samband íslenskra sveitafélaga kr. 124.750,-
> Landsvirkjun kr. 142.226,-
> Kirkjugarðar Reykjavíkurprófastsdæma kr. 109.100,-