Miðflokkurinn hefur stutt þá vinnu sem hefur verið í gangi um þetta og leggur áherslu á að málið sé skoðað með heildstæðum hætti og samtali við fulltrúa þeirra greina sem hlotið hafa löggildingu. Það er mikilvægt að fulltrúar iðngreinanna og neytenda taki þátt í þessari vinnu. Við teljum mjög mikilvægt að vinna að því að bæta starfsumhverfi þeirra aðila sem vinna í þessum iðngreinum á sama tíma og við treystum stoðir iðnmenntunar og aukum skilvirkni í eftirlitskerfinu.
Það er augljóst að ófremdarástand hefur skapast síðustu ár og ber menntamálaráðherra fulla ábyrgð á því að hafa ekki brugðist í tíma við því eins og birtist í því að Tækniskólinn synjaði 700 um skólavist í haust. Skólameistari Tækniskólans hefur kallað eftir skýrri stefnu stjórnvalda. Fjármagn dugi ekki til að mæta aukinni eftirspurn. Við þessu þarf að bregðast sem fyrst því það er augljóslega óásættanleg staða að hafa áhugasama nemendur en engan skóla.
Það er margt sem styður framlengingu á átakinu en það þarf að skoðast í tengslum við aðra vinnu við fjárlagagerð og hvaða hvötum verður beitt við að halda atvinnulífinu gangandi. En Miðflokkurinn er jákvæður gagnvart þessari aðferðafræði sem hefur gefist vel að mörgu leyti.
Miðflokkurinn leggur áherslu á að menntakerfið endurspegla þörf þjóðarinnar fyrir aukna verðmætasköpun og framþróun á næstu árum og áratugum. Fjármagn verði því sérstaklega beint í nám í tækni- og iðngreinum og stutt við þá sem vilja stunda slíkt nám. Um leið þarf að tryggja jafna stöðu allra nemenda, hvar sem er á landinu. Atvinnulífið þarf á því að halda að menntakerfið útskrifi fólk með þekkingu á þeim sviðum sem skipta mestu máli við efnahagslega uppbyggingu landsins. Það hefur lengi verið rætt um mikilvægi þess að efla iðn- og tækninám. Í mörgum tilvikum er slíkt nám dýrara en annað nám. Fjárveitingarnar þurfa að taka mið af því og stjórnvöld ófeimin við að eyrnamerkja fjárveitingar ákveðnu námi. Skattgreiðendur, einstaklingar og fyrirtæki borga reikninginn. Þeir eiga að geta haft áhrif á hvernig fjármagnið er nýtt. Slík nálgun auðveldar líka ríkisvaldinu að liðka fyrir samstarfi skóla og fyrirtækja og auka ásókn í námið.
Það var undir forystu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar sem þessu fyrirkomulagi var komið á með inngreiðslu séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán. Miðflokkurinn styður áframhaldandi nýtingu þess þó þannig að það sé ávallt hluti af heildstæðum aðgerðum. Nú fyrir kosningar hefur Miðflokkurinn lagt til að almenningur fái heimild til að setja 3,5 prósentustig af lífeyrisiðgjaldi sínu í sjóð sem nýta má til eigin fasteignakaupa.